Stormurinn
Stormurinn er spennandi og kraftmikið stríð þar sem allir keppendur berjast á móti öllum í vatnsbyssu bardaga. Það er enginn öruggur, og allir keppendur eru á eigin forsendum. Þú veist aldrei hvar næsti maður sem getur náð þér er, þar sem eini sigurvegarinn verður sá sem kemst að lokum út úr því þurr eða eins þurr og hægt er.
Flóðabrautin
Flóðabrautin er krefjandi vatnsþrautabraut þar sem þátttakendur þurfa að takast á við flóði af hindrunum, bæði í vatni og á landi. Keppendur munu þurfa að kunna að synda og nýta bæði styrk og úthald til að komast áfram. Þetta er þraut sem krefst, hraða, tækni og mikillar einbeitingar, þar sem ekkert fer eftir áætlun og hver ferð er full af óvæntum áskorunum. Flóðabrautin er besta leiðin fyrir keppendur að sýna styrk sinn og getu.
Öldur og átök
3. Öldur og Átök er spennandi tveggja liða vatnsstríð. Þetta er æsispennandi keppni þar sem að bæði liðin þurfa að nýta samvinnu og tækni til þess að ná hinu liðinu. Til þess að vera úr þarf að vera búið að ná þér á sérstakt skotmark sem þú ert með á bringunni. Þetta reynir á styrk, úthald, getu og hraða.
Upplýsingar um viðburðinn
Vatnsstríðið mikla er spennandi vatnsstríð sem reynir á keppendur með þremur krefjandi þrautum. Þessar þrautir reyna á úthald og hugmyndaflug þátttakenda þegar þeir takast á við vatnsþrautir sem krefst tækni, hraða og samvinnu. Þáttakendur sýna styrk sinn og getu í þrautunum þremur.
| Hvenær | Hvað |
|---|---|
| 12:00 | Mæting og undirbúningur |
| 13:00 | Stormurinn |
| 14:30 | Veitingar |
| 15:30 | Flóðabrautin |
| 17:00 | Öldur og Átök |
| 18:00 | Lok viðurðs |
Hvar?
Hvenær?
Vatnsstríðið mikla verður haldið næstkomandi miðvikudag þann 10. júlí 2024